Dagur 81

Kláraði síðasta hlaupadaginn í dag. Ágætt að vera búinn með það. Núna fer ég að hjóla og þá fara kílómetrarnir að hrúgast upp hraðar. 1458 km komnir.


Dagur 80

Orðið heitt í Maiami. síðasti hlaupadagurinn á morgun og á þriðjudaginn byrjar hjólaleggurinn. 1440 km komnir


Dagur 79

Ágætis dagur og veður. 1422 km komnir


Pælingar um löng hlaup

Núna er ég búinn að hlaupa næstum hálfmaraþon á dag í 78 daga í röð. Heimsmetið í að fara hálf marathon dag eftir dag er 53 dagar í röð. Ég er furðu hress. Engin meiðsli í löppunum en er orðinn ansi slappur í öxlunum og hálsinum. Líkaminn virðist borða vöðvana sem ég nota ekki í verkefnið sem eru allir vöðvar ofan mittis. Þeir rýrna á svona löngu hlaupi. Síðan er meltingin viðkvæmari. Ég fæ niðurgang og smásýkingar mun auðveldar. Hef það í huga á næstunni þegar fer að hitna meira. 


Dagur 78

Dagurinn byrjaði mjög vel. Fór í videoupptöku  þar sem teknar voru af mér myndir og video fyrir sjónvarpstöðvar. Drónar elltu mig í smá tíma og tóku vídeo af mér. Mjög gaman að því. síðan Fljótlega fór allt í vesen. Fljótlega eftir að ég skidi við myndatökufólkið þá skall á gríðarleg rigning og þrumuveður eins og það gerist verst í Miami. Og á sama tíma fékk ég í magann.  Komst heim. Maginn að komast í lag en veðrið er enn bandbrjálað. Spáin er betri á morgun 1404 km komnir.


Dagur 77

Mun hressari. Farið að styttast í að ég fari á hjólið. Mun kljúfa 1400 km múrinn á morgun. 1386 km komnir


Dagur 76

Einhver þreyta í mér. Ekkert stress samt. Verð örugglega fínn á morgun. 1368 km komnir


Matur á svona löngum leiðum

Matur á svona gríðarlega löngu álagi sem stendur yfir marga mánuði mest allan daginn og næstum 10 þúsund kílómetra skiptir miklu máli. Mín strategia er að hafa matinn eins fjölbreittan og ég get. Grænmeti og fisk og kjöt. Bananar eru gríðarlega góðir í svona. Ég tók uppá því að fá heimsendann mat frá amazon. Amazon eru með viðskipti við whole foods núna og ég kaupi allan mat þar. Fæ hann heimsendan á þeim tíma sem ég get tekið á móti honum. Vökvi skiptir líka miklu máli.Í miklum hita eins og ég er í núna skiptir vökvi miklu máli og sölt. Söltin halda vökvanum í líkamanum og eru vörn fyrir krampa. Eg er búinn að hlaupa yfir núverandi heimsmet 1350 km vegalengd á mataræðinu mínu. Ég grennist ekki enda er það ekki markmið í sjálfu sér. Að grennast þýðir að maður er að borða minna en maður þarf og á svona langri leið þýðir það að það er þá meiri hætta á meiðslum eða að verða of þreyttur til að halda áfram. Sumir vilja gera lítið úr því sem ég er búinn að gera af því að ég er ekki tálgaður eins og fangi í útrýmingarbúðum eftir allt þetta. En ég lít á þetta allt öðruvísi. Ég er ekki að þessu til þess að grennast. Ég er að þessu af því ég get þetta og enginn á jörðinni hefur nokkurn tíma gert þetta áður. Fituprósentan mín skiptir ekki nokkru máli. Eða hver var fituprósenta Alberts Einsteins? Hver var fituprósenta Eijólfs sundkeppa. Eða mannsins sem fór fyrstur á Everest. Ekki hugmynd um fituprósentur þessarra manna en ég veit afrek þeirra og þau skipta máli. 


Dagur 75

gleymdi gatoratinu þanng að ég varð fyrir smá vökvatapi. Drekk bara meira í dag til að bæta það upp. 1350 km komnir


Dagur 74

Rigning og hált. Datt á leiðinni en slapp við meiðsli sem betur fer.Fyrir utan marblett bara hress 1332 km komnir


Næsta síða »

Um bloggið

Jón Eggert Guðmundsson

Höfundur

Jón Eggert Guðmundsson
Jón Eggert Guðmundsson

Ég er að taka lengstu þríþraut í heimi samkvæmt Guinness. alls 6649 km. 

Apríl 2018
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband